Innlent

Einar K. óskar eftir fundi í sjávarútvegsnefnd

Ísland mun þurfa að fella sig við æðsta vald Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum. Íslensk llög, sem takmarka fjárfestingar í sjávarútvegiog aðgang erlendra skipa að íslenskri lögsögu og þjónustu í höfnum, stangast á við lögsögu Evrópusambandsins, segir meðal annars í greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þar er gerð grein fyrir þeim kröfum, sem Íslendingar verða að uppfylla , sem umsóknarríki að aðild að sambandinu.

Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra hefur af þessu tilefni óskað eftir fundi í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, til að ræða stöðuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×