Erlent

Vill vinna með báðum flokkum en ekki Brown

Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata sagðist í fyrradag ætla að snúa sér að Íhaldsflokknum eftir kosningar en nú segist hann einnig vilja starfa með Verkmannaflokknum.
Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata sagðist í fyrradag ætla að snúa sér að Íhaldsflokknum eftir kosningar en nú segist hann einnig vilja starfa með Verkmannaflokknum. Mynd/AP
Leiðtogi Frjálslyndra demókrata í Bretlandi hefur dregið til baka yfirlýsingu sína um að hann vilji starfa með Íhaldsflokknum eftir kosningar. Nú segist hann einnig vilja vinna með Verkamannaflokknum.

Bresku þingkosningarnar fara fram á fimmtudaginn eftir viku og lítur allt út fyrir að lokasprettur kosningabaráttunnar verði afar spennandi.

Undanfarna daga hefur kosningabaráttan að miklu leyti snúist um Frjálslynda demókrata, en flokkurinn hefur verið þriðji stærsti stjórnmálaflokkur landsins í meira en 20 ár. Svo virðist sem að Nick Clegg, leiðtogi flokksins, sem stolið hefur senunni sé að einhverju leiti að fatast flugið. Í fyrrakvöld vakti mikla athygli yfirlýsing hans um að hann ætlaði að snúa sér til Íhaldsflokksins um myndun nýrrar ríkisstjórnar fengi enginn flokkur meirihluta. Clegg sagði ennfremur að yrði Verkamannaflokkurinn þriðji stærsti flokkur Bretlands eftir kosningarnar ætti flokkurinn ekki að koma að stjórn landsins á næstu árum.

Ummælin vöktu hörð viðbrögð á vinstrivæng stjórnmálanna og nú hefur Clegg dregið í land og sagst jákvæður fyrir samstarfi við Verkamannaflokkinn eftir kosningar. Hann vilji hins vegar ekki vinna með Gordon Brown leiðtoga flokksins og núverandi forsætisráðherra. Hans tími sé einfaldlega liðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×