Ætlar ekki að færa flokkinn til vinstri 16. janúar 2010 12:54 Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi breska Verkamannaflokksins. Mynd/AP
Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, segir Verkamannaflokkinn eiga að vera flokk millistéttarinnar. Hann ætlar ekki að svara kalli grasrótarinnar og færa flokkinn meira til vinstri fyrir kosningar. Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi breska Verkamannaflokksins, hefur átt erfitt uppdráttar heimafyrir og harður slagur er framundan milli hans og Davids Camerons, leiðtoga breska Íhaldsflokksins. Öll pólitísk umræða í Bretlandi er lituð stéttabaráttu og var búist við því að Brown myndi jafnvel færa Verkamannaflokkinn meira til vinstri til að höfða betur til grasrótarinnar í flokknum. Í grein sem Brown skrifar í breska dagblaðið The Guardian í dag segir hann að breski Verkamannaflokkurinn eigi að vera flokkur millistéttarinnar. Með þessu hafnar hann því að höfða eigi sérstaklega til grasrótarinnar og færa flokkinn til vinstri til að styrkja stöðu hans. Brown segir í grein sinni að hann vilji stækka og styrkja millistéttina í landinu. Tækifæri og umbun eigi ekki aðeins að vera á færi þeirra sem standa í efsta þjóðfélagsþrepinu og ekki sé nóg að vernda og styrkja þá tekjulægstu. Brown færir rök fyrir því að hægt sé að fjölga störfum mikið mikið með nýsköpun, en búist er við að skapa megi sjö milljónir nýrra starfa með þeim hætti fyrir 2020. Brown segir að þetta verði aðeins að veruleika með virkri atvinnustefnu. Fréttaskýrendur í Bretlandi segja að skrif Browns um að höfða eigi til millistéttarinnar og að hana þurfi að styrkja og stækka sé vísbending um að kosningarnar í júní næstkomandi muni ekki vinnast með því að draga línu milli stéttanna í landinu, en með þeirri aðferðafræði hafi Verkamannaflokkurinn unnið síðustu þrjár kosningar.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Fleiri fréttir Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Sjá meira