Vilja ekki sjá fanga frá Guantanamo 30. janúar 2010 03:30 Borgarstjóri New York vill ekki að réttarhöldin verði haldin á Manhattan. fréttablaðið/AP
Michael Bloomberg, borgarstjóra í New York, hefur snúist hugur og hvetur nú leiðtoga Demókrataflokksins til að sjá til þess að réttarhöld yfir föngum frá Guantanamo-búðunum á Kúbu verði ekki haldin í New York, eins og Barack Obama Bandaríkjaforseti hafði tilkynnt. Vaxandi andstaða er fyrir því að réttarhöldin verði haldin þar í borg, og nú virðist ríkisstjórn Obama vera að láta undan þeim þrýstingi. Bandaríska fréttastofan AP fékk þetta staðfest hjá tveimur embættismönnum stjórnarinnar, sem vilja þó ekki láta nafns síns getið. Obama hafði tilkynnt að réttarhöldin yfir Khalid Sheikh Muhammed og fjórum öðrum mönnum, sem grunaðir eru um að hafa skipulagt árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001, verði haldin í New York. Dómsalurinn, sem þau réttarhöld færu fram í, er á Manhattan-eyju, skammt frá þeim stað þar sem Tvíburaturnarnir stóðu. Obama hafði strax við upphaf forsetatíðar sinnar fyrir rúmu ári lofað því að Guantanamo-búðunum yrði lokað innan árs. Það hefur tafist og ekki er að sjá hvenær Obama getur efnt það loforð, ef nokkurn tímann. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira