Öldungar hvetja til málfrelsis í Kína 14. október 2010 03:30 Kínverskur lögreglumaður reynir að hafa hemil á ljósmyndurum fyrir utan heimili Liu Xia, eiginkonu friðarverðlaunahafans Liu Xiaobo, í Peking. nordicphotos/AFP
Hópur aldraðra félaga í Kommúnistaflokki Kína krefst þess að hömlum verði létt af tjáningarfrelsi í landinu. Í bréfi sem þeir hafa ritað til þjóðþingsins segja öldungarnir að ritskoðun sú sem nú tíðkist í Kína sé bæði skömm og hneisa. Undir bréfið skrifa 23 félagar í Kommúnistaflokknum, sem allir eru komnir til ára sinna. Margir þeirra hafa gegnt áhrifastöðum innan flokksins og einn þeirra, Li Rui, var um skeið ritari Mao Zedong, leiðtoga kínversku byltingarinnar. Annar bréfritara var í eina tíð ritstjóri Dagblaðs alþýðunnar, sem er opinbert málgagn Kommúnistaflokksins, og aðrir hafa verið hátt settir innan ríkisfjölmiðla og áróðursyfirvalda landsins, þar sem þeir gegndu því hlutverki að hafa stjórn á opinberri umræðu. Bréfritararnir hafa áður birt opinberlega bréf þar sem þeir hvetja til gagnsæis í kínverskri stjórnsýslu og stjórnmálum. Öldungarnir benda á að í stjórnarskrá landsins sé ákvæði um tjáningarfrelsi en það ákvæði sé ekki virt af núverandi stjórnvöldum. Norska Nóbelsnefndin benti á þetta sama í lok síðustu viku, þegar hún skýrði frá því að kínverski andófsmaðurinn Liu Xiaobo hlyti friðarverðlaunin í ár. Hann afplánar ellefu ára fangelsi fyrir það sem kínversk stjórnvöld kalla undirróður gegn ríkisvaldinu. Öldungarnir vilja meðal annars afnema það kerfi að allir fjölmiðlar landsins séu tengdir stjórnvöldum. Þeir vilja að ríkið styðji stofnun nýrra fjölmiðla í einstaklingseigu og leyfi óhefta dreifingu fjölmiðla frá Hong Kong og Makaó. Þá vilja þeir breyta hlutverki áróðursyfirvalda, þannig að í stað þess að þau einbeiti sér að því að koma í veg fyrir upplýsingaleka snúi þau sér að því að tryggja að upplýsingar sem berist frá stjórnvöldum séu áreiðanlegar. Þeir vilja afnema lögreglueftirlit með netmiðlum. Bréfið er birt stuttu eftir að norska Nóbelsnefndin tilkynnti um friðarverðlaunin. Kínversk stjórnvöld brugðust ókvæða við ákvörðun Nóbelsnefndarinnar og hafa hótað því að samskiptin við Noreg muni versna. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira