Beitti dóttur vatnspyntingum Óli Tynes skrifar 8. febrúar 2010 15:22 „Þvottabrettið“ ere talin árangursrík pyntingaraðferð.
Bandarískur faðir hefur verið handtekinn fyrir að beita fjögurra ára gamla dóttur sína vatnspyntingum vegna þess að hún vildi ekki fara með stafrófið fyrir hann. Hinn 27 ára gamli Joshua Tabor byrjaði á því að berja barnið. Síðan lögðu hann og kærasta hans telpuna á eldhúsborðið með höfuðið yfir vaskinum og kaffærðu hana þrisvar eða fjórumsinnum. Tabor sagði lögreglunni að telpan væri vatnshrædd og hefði barist um til þess að reyna að losna. Lögreglumaður sagði að Tabor hefði sagt þetta blátt áfram eins og honum þætti ekkert óeðlilegt við slíka refsingu. Kærasta föðurins sagði að telpan væri blá og marin á bakinu eftir barsmíðar og að hún hefði lokað sig inni í skáp til þess að fela sig fyrir föðurnum. Tabor er hermaður og miklar deilur hafa staðið innan hersins um pyntingaaðferð sem kölluð er þvottabrettið. Þar er fólki haldið niðri eða það bundið á bretti og vatni hellt yfir vit þess svo því finnst það vera að drukkna. Joshua Tabor kemur fyrir rétt 16. febrúar ákærður fyrir árás á barn.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira