Leiðtogi stjórnarandstöðunnar sigrar í Úkraínu 8. febrúar 2010 08:15 Viktor Janukovitsj í gær. Mynd/AP
Allt lítur út fyrir að Viktor Janukovitsj, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu og fyrrverandi forsætisráðherra, hafi sigrað í síðari umferð forsetakosninganna sem fram fóru í landinu í gær. Þegar rúmlega 70% atkvæða hafa verið talin hefur Janukovitsj fjögurra prósenta forskot á mótherja sinn Júlíu Tímósjenkó, forsætisráðherra. Útgönguspár bentu til þess að Janukovitsj myndi sigra með allt að tíu prósenta mun. Tímósjenkó viðurkennir ekki sigur mótherja síns og sakar hann um kosningasvik. Hún hefur jafnframt hótað að boða til mótmælaaðgerða - og er allt eins búist við að þær aðgerðir hefjist strax í dag. Sjálfur segir Janukovitsj nýjan kafla vera að hefjast í sögu Úkraínu. Hann telur réttast að Tímósjenkó viðurkenni úrslitin og láti nú þegar af embætti forsætisráðherra. Janukovitsj var kjörin forseti í árslok 2004 en andstæðingur hans Viktor Júsjenko og alþjóðlegir eftirlitsaðilar vefengdu úrslitin og við tók stjórnarkreppa. Fjöldi Úkraínumanna mótmæltu undir merkjum appelsínugulu byltingarinnar svokölluðu sem Júsjenko og Tímósjenkó leiddu. Í kjölfarið var Júsjenko lýstur sigurvegari kosninganna og tók hann við sem forseti í ársbyrjun 2005. Síðan þá hefur mikið gengið á í Úkraínu og þær breytingar sem leiðtogar appelsínugulu byltingarinnar boðuðu gengið hægt. Auk þess slitnaði fljótlega upp úr samstarfi Júsjenko og Tímósjenkó sem varð forsætisráðherra. Síðan þá hefur efnahagur Úkraínu versnað og er landið nú eitt það fátækasta í Evrópu og þá hefur gengið afar illa að uppræta spillingu innan stjórnkerfisins. Um leið hefur tiltrú almennings á Júsjenko og Tímósjenkó minnkað og vinsældir Janukovitsj aukist.
Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira