Enski boltinn

Kalou: Erum að hræða hin liðin

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Kalou skorar gegn Wigan.
Kalou skorar gegn Wigan. AFP
Tveir leikir, tólf mörk. Það eru allir hræddir við Chelsea. Þetta segir Salomon Kalou.

"Við höfum byrjað eins og við kláruðum síðasta tímabil," sagði Kalou en Chelsea vann Wigan 8-0 á lokadegi síðasta tímabils.

"Þegar þú ert Englandsmeistari þá verðurður að hræða hin liðin og það er það sem við erum að gera. Núna erum við að njóta fótboltans og við ætlum að halda áfram á sömu braut," segir Kalou.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×