Tugir myrtir í árás á moskur 29. maí 2010 01:30 Almennir borgarar voru skelfingu lostnir eftir blóðbaðið en árásin og skotbardagar stóðu klukkustundum saman.nordicphotos/afp
Minnst 80 manns létust og fjöldi særðist í árás á tvær moskur Ahmati múslíma í borginni Lahore í Pakistan í gær. Í gærkvöldi var ekki vitað hverjir stóðu fyrir ódæðinu eða hversu margir árásar-mennirnir voru. Þeir beittu bæði hríðskotarifflum og handsprengjum áður en þrír þeirra sprengdu sprengjur sem þeir báru innanklæða. Samkvæmt fréttum BBC hafa Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human Rights Watch upplýsingar um að árásin sé sprottin undan rifjum pakistanskra talibana. Ahmati múslímar eru í miklum minnihluta í landinu og sæta ofsóknum af hálfu bókstafstrúaðra múslíma sem saka þá um guðlast. Trúarhópnum var bannað að kalla sig múslíma af pakistönskum stjórnvöldum árið 1973 og árið 1984 var bannið lögfest. BBC hefur eftir sjónarvottum að nokkrir árásarmenn hafi gert árás úr turnum bænahúsanna á sama tíma og aðrir héldu hópum fólks föngnum innandyra. Skotbardagar brutust út þegar lögregla og hermenn komu að byggingunum skömmu eftir að árásin hófst. Árásin í gær er ekki sú fyrsta gegn Ahmati múslímum í Pakistan. Um áratugaskeið hefur reglulega verið ráðist gegn þeim en árásin í gær er sú langalvarlegasta til þessa. - shá
Mest lesið Skilti Vegagerðarinnar morandi í villum: „Er ekkert gæðaeftirlit hjá ykkur?“ Innlent Grunaður árásarmaður í Úlfarsárdal handtekinn Innlent Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Erlent Skutu mann í röngu húsi en brutu ekki af sér Erlent Hjalti Snær sá sem fannst látinn Innlent Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni upp í Þórsmörk og sneri heill heim Innlent Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Erlent Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Erlent Haraldur Jóhannsson er látinn Innlent Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Innlent Fleiri fréttir Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Skutu mann í röngu húsi en brutu ekki af sér Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Notuðu þúsundir myndavéla til að vakta hergagnaflutninga Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Handtóku unga öfgahægrimenn sem hugðu á hryðjuverk Úkraínskur fyrrverandi embættismaður skotinn til bana í Madrid Norðmenn þurfa að taka tillit til loftslagsáhrifa olíuvinnslunar Dreifing hjálpargagna enn ekki hafin Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Sjá meira