Innlent

Byssubardagar í Reykjavík fái Hells Angels að festa rætur

Úr safni.
Úr safni. Mynd/Haraldur Jónasson
Borgarstjórinn í Kaupmannahöfn varar Íslendinga við komu Hells Angels hingað til lands. Ekki líði að löngu þangað til glæpagengi skiptist á skotum á götum Reykjavíkur, eins og gerst hafi í Danmörku.

Nokkuð ljóst er að samtökin eru við það að festa rætur hér á landi. Mótorhjólaklúbburinn MC Iceland, áður Fáfnir, sækjast eftir því að gerast fullgildir félagar í Hells Angels og er jafnvel búist við að það verði síðar á árinu.

Frank Jensen, borgarstjóri Kaupmannahafnar, er staddur hér á landi á leiðtogafundi norrænna höfuðborga. Hells Angels samtökin eru nokkuð stór í Kaupmannahöfn og því þekkir Frank vel til þessara mála. Hann segir það geta haft alvarlegar afleiðingar nái samtökin fótfestu hér á landi.

„Þeir munu fara að stunda glæpastarfsemi sem tengist meðal annars fíkniefnaviðskiptum, mansali, vændi og vernd gegn greiðslu. Þetta eru helstu tegundir glæpa sem þeir stunda," segir Frank Jensen, borgarstjóri Kaupmannahafnar.

Frank segir ástandið verða enn alvarlegra ef önnur samtök í líkingu við Hells Angels fylgi í kjölfarið, líkt og Banditos.

„Það gætu verið Banditos eða aðrir hópar. Þá er stutt í átök sem geta magnast upp í ofbeldi og skotbardaga sem við höfum kynnst á götum Kaupmannahafnar. Mitt ráð til Íslands ef þeir festa rætur hér er: Verið á varðbergi. Lögreglan á að vera til staðar frá fyrstu stundu," segir Frank.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×