Ólína Þorvarðar: Ætlar Geir að persónugera vandann nú? Valur Grettisson skrifar 28. september 2010 20:18 Ólína Þorvarðardóttir finnst sorglegt að Geir ætli að persónugera framgöngu Samfylkingarinnar. „
Einu sinni sagði Geir H. Haarde að nú væri ekki rétti tíminn til þess að persónugera vandann og mér finnst sorglegt ef hann ætlar að persónugera það sem gerðist á Alþingi í dag," svaraði Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar hún var spurð í Kastljósi um ummæli Geirs þar sem hann sagði framgöngu Samfylkingarinnar loddaraleik. Ólína greiddi atkvæði með því að Geir yrði ákærður í dag. Hún segist hafa gert málið upp eftir sinni sannfæringu. Sú ákvörðun hafi ekki verið auðveld. Ólína lýsir því að hún hafi gengið í gegnum mikið hugarstríð til þess að komast að þeirri niðurstöðu að það ætti að ákæra Geir. „Ef það heitir pólitískur loddaraskapur að fylgja sinni sannfæringu þá er ég stoltur pólitískur loddari," sagði Ólína. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að sér hefði verið misboðið þegar hann fylgdist með atkvæðagreiðslunni á Alþingi í dag. „Mér er misboðið hvernig gengið var fram og ég trúi ekki öðru en að kjósendum sé líka misboðið," sagði Sigurður Kári um málið en þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu allir atkvæði gegn því að fyrrverandi ráðherrarnir yrðu ákærðir. Sigurður Kári sagðist aðspurður að hann sæi því ekkert til fyrirstöðu að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskipta- og efnahagsráðherra tæki aftur sæti á Alþingi en hann hefur verið í leyfi síðan byrjað var að skoða ábyrgð ráðherranna. Ólína var ekki jafn afdráttarlaus og sagðist ekki geta svarað þeirri spurningu. Í raun þyrfti Björgvin að taka þá ákvörðun sjálfur.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira