Enski boltinn

Given má fara frá City líkt og Cruz og Robinho

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Roberto Mancini staðfestir að Shay Given, Robinho og Roque Santa Cruz megi fara frá Manchester City. Stærstu fréttirnar þar eru að Given megi fara.

Mancini hafður áður sagt að hann vilji halda Given en ljóst er að slegist verður um markmanninn.

Celtic, Fulham og Arsenal hafa öll verið orðuð við Given.

West Ham, Fulham og Liverpool hafa verið orðuð við Santa Cruz og Besiktas, Fenerbahce og Schalke við Robinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×