Stokka upp í landbúnaði 20. nóvember 2010 06:30 Dacian Ciolos, landbúnaðarstjóri Evrópusambandsins, kynnti þrjár meginleiðir á blaðamannafundi í Brussel í vikunni.nordicphotos/AFP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti í vikunni hugmyndir um breytingar á sameiginlegu landbúnaðarstefnunni, sem stefnt er að á næstu árum. Meginbreytingarnar, sem stefnt er að, verða fólgnar í því að smærri bændum verði tryggt meira fé en nú er, þeir sem stunda búskap á erfiðum landbúnaðarsvæðum fái meiri stuðning og sömuleiðis verði betur stutt við bakið á matvælaframleiðslu frekar en öðrum landbúnaði. Framkvæmdastjórnin leggur til þrjár mismunandi leiðir sem ganga mislangt, allt frá því að farið verði rólega í allar breytingar á núverandi kerfi yfir í allsherjar uppstokkun sem fæli í sér afnám beingreiðslna til bænda. Ekki er þó stefnt að neinum breytingum á því fjármagni sem Evrópusambandið ver í landbúnaðarkerfið. Tillögurnar eru byggðar á niðurstöðum ráðstefnu, sem haldin var fyrr á árinu. Þessar tillögur verða nú bornar undir hagsmunaaðila og síðan verður lögð fram endanleg tillaga að lagabreytingum í júní á næsta ári. Öll aðildarríkin þurfa að samþykkja breytingarnar áður en þær taka gildi, og þær verða einnig að fá samþykki Evrópuþingsins. Dacian Ciolos, hinn rúmenski landbúnaðarstjóri Evrópusambandsins, segir megináhersluna vera á að landbúnaðarstefnan verði „grænni, sanngjarnari, hagkvæmari og árangursríkari“. Á ráðstefnunni fyrr á árinu var talað um þrjú meginmarkmið, sem stefnt skuli að: Landbúnaðarstefna Evrópusambandsins eigi að tryggja örugga og næga framleiðslu á matvælum; hún eigi að gefa bændum hvata til að taka tillit til umhverfis- og loftslagssjónarmiða; og loks eigi hún að taka mið af því að bændur gegni meginhlutverki í að halda strjálbýlum svæðum í byggð. Evrópusambandið varði 55 milljörðum evra í landbúnaðarmál á síðasta ári, en á núverandi gengi nemur sú fjárhæð um það bil 8.500 milljörðum króna. Breytingartillögurnar hafa fengið misjafnar viðtökur. Írskir bændur hafa til dæmis gagnrýnt róttækari hugmyndirnar um að stokka upp í beingreiðslum, þannig að þeim verði dreift til bænda óháð fyrri reynslu. Þeir óttast að það geti grafið undan landbúnaðarframleiðslu af öllu tagi. Sameiginlega landbúnaðarstefnan hefur sætt margvíslegri gagnrýni, meðal annars fyrir að vera of dýr og óhagkvæm. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira