Innlent

Gekk berserksgang hjá umboðsmanni skuldara

Erla Hlynsdóttir skrifar
Ungur karlmaður gekk berserksgang á skrifstofu umboðsmanns skuldara nú rétt fyrir hádegið og braut bæði rúðu og skilrúm sem skilur að ráðgjafa embættisins. Karlmaðurinn átti fund með ráðgjafa en reiddist mjög í viðtalinu og kastaði tölvu ráðgjafans í gólfið. Á leið hans út skellti hann síðan hurðinni svo harkalega að rúða brotnaði.

Starfsfólki umboðsmanns var boðið upp á áfallahjálp eftir atvikið. Ráðgjafinn sem maðurinn var hjá tók uppákomuna sérstaklega nærri sér. „Henni var mjög brugðið eins og öllum öðrum," segir Svanborg Sigmarsdóttir, upplýsingafulltrúi embættisins.

Ekkert atvik í líkingu við þetta hefur komið upp frá því umboðsmaður skuldara tók til starfa.

Þó starfsfólk sé hvekkt lætur það engan bilbug á sér finna og mætir aftur til vinnu í fyrramálið. Svanborg segir að um einstakt atvik hafi verið að ræða og starfsfólk telji því litla hættu á að viðlíka eigi sér stað aftur.

Lokað verður hjá embættinu það sem eftir lifir dags en opnað aftur í fyrramálið þegar búist er við að búið verði að lagfæra skemmdir. Svanborg segist ekki vita á hvað tjónið er metið fjárhagslega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×