Erlent

Sendir 1200 hermenn að landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Barack Obama ætlar að senda 1200 hermenn að landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Mynd/ AP.
Barack Obama ætlar að senda 1200 hermenn að landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Mynd/ AP.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætlar að senda allt að 1200 hermenn að landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó til að fást við ólöglega innflytjendur og fíkniefnasmyglið þar. Að auki mun forsetinn biðja fulltrúadeild þingsins um 500 milljónir bandaríkjadala, eða jafnvirði 65 milljarða íslenskra króna, til að takast á við vandann.

Forsetinn í Mexíkó, Felipe Calderon, heimsótti Obama í síðustu viku. Við það tækifæri bað hann jafnframt Obama um aðstoð við að stöðva vopnasmygl á milli Bandaríkjanna og Mexíkó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×