Tíundi hver borgaði fasteignagjöld of seint 11. mars 2010 06:00 1.982 milljónir af fasteignagjöldum borgarinnar innheimtust ekki innan tuttugu daga frá eindaga. Milliinnheimtufyrirtæki tókst að innheimta um 725 milljónir. Um áramót voru 1.257 milljónir enn í vanskilum.fréttablaðið/gva
Ellefu prósent af álögðum fasteignagjöldum Reykjavíkurborgar á síðasta ári voru send til milliinnheimtufyrirtækis í innheimtu. Alls voru vanskilin 1.982 milljónir króna og greiðendurnir 5.472 talsins. Meðalskuld hvers gjaldanda var um 362.000 krónur sem er meira en þreföld fasteignagjöld meðal-íbúðar. Í svari borgarinnar við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur ekki fram hve stór hluti vanskilanna er vegna íbúðarhúsnæðis og hve stór vegna atvinnuhúsnæðis. „Stór hluti vanskila fasteignagjalda er vegna fasteignafélaga sem lent hafa í erfiðleikum í kjölfar þrenginga í efnahagsmálum," segir hins vegar þar. Af 5.472 greiðendum stóðu 3.282 skil á gjöldum sínum fyrir tilstuðlan milliinnheimtufyrirtækis og greiddu samtals 725 milljónir króna eða um 36 prósent af heildarvanskilum. Um áramót voru 2.190 aðilar enn í vanskilum með 1.257 milljóna króna fasteignagjöld, sem svarar til um 7% af álögðum heildargjöldum. Meðal-vanskil um áramót voru um 574 þúsund krónur. Í svarinu kemur fram að fasteignagjöld hafi verið send í milliinnheimtu hafi þau ekki verið greidd tuttugu dögum eftir eindaga. Fréttablaðið spurði um þá skilmála sem borgin setur millifyrirtækjum um innheimtukostnað. Því er til svarað að innheimtukostnaðurinn vegna ársins 2009 hafi verið samkvæmt samningi borgarinnar og milliinnheimtufyrirtækis mun lægri en hámarksfjárhæðir samkvæmt lögum. Milliinnheimta og löginnheimta vegna ársins 2010 séu nú í útboðsferli. Greiðslu fasteignagjalda var dreift á níu gjalddaga árið 2009 og leiddi það til þess að kröfum og útsendum greiðsluseðlum fjölgaði verulega frá því sem var þegar gjalddagarnir voru sex talsins. Alls voru 41.654 kröfur sendar í milliinnheimtu, eða tæplega sex kröfur á hvern aðila. Fréttablaðið hefur ekki undir höndum samning borgarinnar við fyrirtækið Momentum um innheimtuna. Miðað við að lágmarksþóknun hafi verið 600 krónur fyrir innheimtubréf hefur heildarþóknun vegna fyrstu innheimtutilrauna verið 25 milljónir króna. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, hefur óskað eftir umræðu um vanskilainnheimtu á borgarráðsfundi í dag. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira