Innlent

Karl fékk Tékkneska ljónið

Karl óskarsson
Karl óskarsson
Karl Óskarsson var útnefndur kvikmyndatökumaður ársins á kvikmyndahátíðinni Tékkneska ljóninu sem var haldin í Prag á laugardag. Verðlaunin hlaut hann fyrir töku á myndinni 3 sezony v pekle (Þrjár árstíðir í helvíti), sem var frumsýnd í Tékklandi fyrir jól. „Þetta er frekar stór mynd á tékkneskan mælikvarða. Hún var tilnefnd til ellefu ljóna og fékk verðlaun fyrir aðalleik, kvikmyndatöku og hljóð,“ segir Karl.

Á kvikmyndahátíðinni voru veitt verðlaun í þrettán flokkum og þrír tilnefndir í hverjum. „Það vakti athygli að útlendingur væri á meðal tilnefndra og enn meiri athygli að ég skyldi vinna.“- ve



Fleiri fréttir

Sjá meira


×