Enski boltinn

Vörnin hausverkur fyrir Redknapp

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leikmenn Tottenham í innilegum faðmlögum.
Leikmenn Tottenham í innilegum faðmlögum.

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Tottenham, mun bíða með það fram á síðustu stundu að tilkynna lið sitt fyrir undanúrslitaleikinn í bikarnum gegn Portsmouth á sunnudag.

Meiðsli miðvarða liðsins er áhyggjuefni fyrir Redknapp en óvíst er hver mun leika við hlið Sébastien Bassong. Michael Dawson er í kapphlaupi við tímann um að verða klár, Jonathan Woodgate er frá út tímabilið og Younes Kaboul má ekki spila í bikarnum.

Ledley King á við meiðsli að stríða í hné en Redknapp veit ekki hvort hann verði með. „Það er aldrei hægt að segja með Ledley. Stundum getur hann spilað þrátt fyrir að geta ekki æft," sagði Redknapp.

Bakvörðurinn Vedran Corluka sem gæti spilað í miðverðinum er meiddur á ökkla svo Tom Huddlestone gæti verið færður frá miðjunni og í vörnina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×