Erlent

Þrettán pólskir ferðamenn fórust

Óli Tynes skrifar
Flakið af rútunni.
Flakið af rútunni.

Þrettán manns létu lífið og 29 slösuðust þegar rúta sem var að flytja pólska ferðamenn lenti í hörðum árekstri skammt frá Berlín í gær.

Pólverjarnir voru á heimleið frá Spáni. Lögreglan segir að svo virðist sem bíll hafi ekið utan í rútuna með þeim afleiðingum að hún lenti á fullri ferð á brúarhandriði.

Ættingjar þeirra sem voru í rútunni eru á leið til Berlínar ásamt Donald Tusk forsætisráðherra Póllands. Angela Merkel kanslari Þýskalands hefur heitið þeim allri aðstoð sem unnt er að veita.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×