Enski boltinn

Paul Hart tekur við Crystal Palace

Elvar Geir Magnússon skrifar
Paul Hart er tekinn við Palace.
Paul Hart er tekinn við Palace.

Paul Hart er nýr knattspyrnustjóri Crystal Palace. Liðið er í fallbaráttu ensku 1. deildarinnar en liðið er í greiðslustöðvun og 10 stig voru dregin af því fyrr í vetur.

Hart er fyrrum stjóri Chesterfield, Nottingham Forest, Barnsley, QPR og Portsmouth en þessi 56 ára stjóri tekur við af Neil Warnock sem ráðinn var til QPR í gær.

Hart skrifar undir samning út tímabilið en þetta er þriðja liðið sem hann stýrir á tímabilinu. Dougie Freedman verður aðstoðarmaður Hart en Freedman er goðsögn í augum stuðningsmanna Crystal Palace.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×