Innlent

Á sjöunda hundrað starfsmanna horfnir á braut

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir ekki hægt að skera meira niður en um 850 milljónir. Mynd/ Anton.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir ekki hægt að skera meira niður en um 850 milljónir. Mynd/ Anton.
Starfsmenn á Landspítala eru nú 627 færri en voru í janúar 2009 og rúmum hefur fækkað um 90. Landspítalinn þarf að skera niður um 850 milljónir á næsta ári og verða helstu tillögur að niðurskurði kynntar eftir 2-3 vikur, segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í pistli á vef Landspítalans.

„Ég tel að ef við verðum látin skera meira niður en nemur 850 milljónum á næsta ári verðum við komin út á hálan ís og erfitt verði að reka háskólasjúkrahús af þeim gæðum sem fólk hefur vanist, spítala allra landsmanna sem alltaf er opinn og tekur við öllum," segir Björn í pistlinum.

Björn segir að spítalinn hafi breyst mikið síðustu tvö árin. Þjónustustigið hafi breyst og minnkað en markmiðið hafi alltaf verið að passa upp á öryggi sjúklinga. Björn segir að það hafi verið skorið niður um 6.150 milljónir seinustu tvö ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×