Erlent

Lettar ganga til kosninga í dag

Ung stúlka með lettneska fánann. Hún mun þó eflaust ekki kjósa í dag.
Ung stúlka með lettneska fánann. Hún mun þó eflaust ekki kjósa í dag.
Lettar ganga til þingkosninga í dag í fyrsta sinn frá því að hagkerfi landsins fór út af sporinu árið 2008. Ekkert land hefur orðið verr úti í heimskreppunni, en samdráttur í landsframleiðslu Lettlands nemur um fjórðungi og atvinnuleysi er um 20 prósent.

Talið er að úrslit kosninganna komi til með að endurspegla reiði þjóðarinnar í garð stjórnvalda vegna niðurskurðar og skattahækkana, en stjórnarandstaðan í landinu hefur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu. Stóru málin sem ráðast í kosningunum eru meðal annars samstarf landsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og áform um að taka upp Evruna árið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×