Bjartsýnisturn vígður í gær 5. janúar 2010 04:00 Á útsýnishæðinni. Þarna sést yfir Persaflóann og borgríki Sameinuðu arabísku furstadæmanna á Arabíuskaga. Nordicphotos/AFP
Mikið var um dýrðir þegar hæsta bygging heims var vígð í Dúbaí í gær, á fjárhagslegum erfiðleikatímum sem eru þeir verstu í sögu furstadæmisins. Við vígsluathöfnina var skýrt frá því að hæð turnsins er 828 metrar, en henni hafði verið haldið leyndri fram á síðustu stundu. Jafnframt var skýrt frá því að turninn hefði fengið nafni Burj Khalifa til heiðurs forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Khalifa bin Zayed Al Nahyan. Turninn, sem hefur verið í smíðum síðan 2004, státar af 206 hæðum, fjórum sundlaugum, nokkrum verslunarmiðstöðvum og útsýnispalli á 124. hæð. Hann er ekki aðeins stór í sniðum heldur sannkölluð glæsibygging þar sem hvergi er sparað. Sextán neðstu hæðirnar eru teknar undir hótel sem tískukóngurinn Giorgio Armani hefur hannað. Þar fyrir ofan eru íbúðir, skrifstofur og önnur aðstaða fyrir fyrirtæki af ýmsu tagi. Smíðin hefur kostað 500 milljarða króna. Dúbaí er eitt hinna sjö borgríkja í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fyrir mannsaldri var Dúbaí lítið meira en sjávarþorp en hefur bólgnað út á síðustu tveimur áratugum. Fyrir jólin riðaði hins vegar fjármálakerfi landsins til falls þegar stærsta fyrirtæki þess, Dubai World, komst í greiðsluþrot. Þúsundir manna mættu til vígsluathafnarinnar í gær og fengu að skoða herlegheitin, sem Dúbaímenn hafa kallað „lóðrétta borg“. Dúbaímenn eiga einnig metið þegar spurt er um stærstu byggingu heims að fermetratali, sem er flugstöðvarbygging 3 við alþjóðaflugvöllinn í Dúbaí. Stærsta bygging heims að rúmmáli er hins vegar Boeing-verksmiðjan í Everett í Washingtonríki Bandaríkjanna. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira