Erlent

Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns

John Terry.
John Terry.
John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann.

Terry og Vanessa sváfu saman skömmu eftir að samband hennar og Bridge hófst. Þá lék Bridge með Terry í vörninni hjá Chelsea en hann skipti yfir í Manchester City fyrir rúmu ári síðan.

Terry mun hafa þrýst á Vanessu að fara í fóstureyðingu og þá lét hann hana fá 20 þúsund pund, sem samsvarar 4,1 milljón króna, til að dekra við sjálfa sig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×