Enski boltinn

Liverpool gæti misst níu stig og söluna í uppnám

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AP
Staða Liverpool í botnbaráttu ensk úrvalsdeildarinnar gæti versnað enn frekar takist félaginu ekki að klára söluna á félaginu áður en risarstórt lán fellur á félagið eftir inann við viku og þvingar þetta fornfræga félag í gjaldþrot.

Takist stjórn Liverpool ekki að vinna málið gegn "gömlu" eigendunum fyrir föstudaginn 15.október mun 237 milljón punda lán frá Royal Bank of Scotland falla á eignarhaldsfélagið og þar sem að eigendur þess, Tom Hicks og George Gillett, eru í það miklum fjárhagserfiðleikum heima fyrir, þá munu þeir örugglega ekki getað borga þessa upphæð.

Reglur ensku úrvalsdeildarinnar segja að ef félag fari í gjaldþrot þá missi það sjálfkrafa níu stig eins og gerðist hjá Portsmouth í fyrra. Liverpool hefur aðeins sex stig út úr fyrstu sjö leikjum sínum og gerist það versta í stöðunni væri liðið því komið í botnsætið með mínus þrjú stig. Liverpool yrði þá átta stigum á eftir Wolves og West Ham United og níu stigum frá öruggu sæti.

Til að forðast þetta ferli þurfa Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, og félagar hans að vinna málið á næstu sex dögum en Tom Hicks ætlar að berjast gegn eigendaskiptunum til þess að reyna að ná meiri pening út úr félaginu. Meirihluti stjórnar Liverpool ákvað að selja Liverpool gegn vilja eigendanna tveggja sem vildu frá miklu meira fyrir félagið en þeir fá í þessum kaupsamning.

Til að bæta gráu ofan á svart þá gætu nýju eigendurnir, sem eiga líka bandaríska hafnarboltaliðið Boston Red Sox, hætt við allt saman missi Liverpool þessi níu stig. Smá von liggur reyndar í því að Royal Bank of Scotland sjái hag í því að forða félaginu frá gjaldþroti þar sem tjón Liverpool við það yrði það mikið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×