Talibanar vilja semja frið -Washington Post Óli Tynes skrifar 6. október 2010 11:30 Eru byssurnar að þagna?
Washington Post segist hafa fjölmarga heimildarmenn fyrir frétt sinni. Þeir hafa allir óskað nafnleyndar þar sem viðræðurnar eru leynilegar. Í síðustu viku sagði hinsvegar David Petraeus yfirhershöfðingi Bandaríkjanna í Afganistan að hátt settir leiðtogar talibana hafi leitað til æðstu manna í ríkisstjórn Afganistans um viðræður. Einn heimildarmanna blaðsins orðaði það þannig að talibanar væru mjög, mjög alvarlegir í tilraunum til þess að finna leið út úr stríðinu.Afganskir og arabiskir heimildarmenn segjast telja að fulltrúar talibana hafi nú í fyrsta skipti umboð frá klerkinum Mohammed Ómar æðsta leiðtoga þeirra.Það er þó ekki eintómur friðarvilji sem ræður för hjá leiðtogum talibana. Einn heimildarmannanna sagði að þeir vissu að það væri verið að reyna að setja þá til hliðar. Ennþá öfgafyllri öfl innan þeirra eigin raða væru í sókn. Þeir séu því vissir um að þótt stríðsreksturinn gangi vel séu þeir í tapstöðu.Framtil þessa hafa Ómar og félagar hans hafnað öllum viðræðum nema erlendar hersveitir fari fyrst úr landi.Nú er hinsvegar byrjað að tala um yfirgripsmikla lausn sem felur meðal annars í sér að talibanar fái sæti í ríkisstjórn Afganistans og að bandarískir og NATO hermenn fari úr landi.Ahmed Karzai forseti Afganistans hefur lengi lagt áherslu á að semja við talibana og búast má við að Bandaríkjamenn og aðrar NATO þjóðir tækju slíkri lausn fegins hendi.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira