Íslenski boltinn

Guðjón gerði ótímabundinn samning við BÍ/Bolungarvík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón sést hér er hann stýrði Stoke.
Guðjón sést hér er hann stýrði Stoke.

Óvænt stórtíðindi urðu í dag þegar BÍ/Bolungarvík tilkynnti að félagið hefði náð samningum við Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfara.

Guðjón mun hefja störf hjá félaginu 15. október. Hann mun vera með æfingar hjá félaginu í Reykjavík fram á vor er hann flyst vestur yfir sumartímann.

Athygli vekur að samningur Guðjóns er ótímabundinn eins og forráðamenn BÍ/Bolungarvíkur kalla það.

Aðspurður vildi Samúel Samúelsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, ekki staðfesta hvort það þýddi að báðir aðilar gætu slitið samningnum með engum fyrirvara.

"Við erum sáttir með þennan samning," sagði Samúel við Vísi um þennan sérkennilega samning.

BÍ/Bolungarvík vann sér sæti í 1. deildinni síðasta sumar og félagið ætlar sér greinilega stóra hluti næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×