Borga ekki vatnsveitu nema fá virkjun á aðalskipulagið 26. febrúar 2010 05:00 Hætta er á að vatnsból Flóahrepps raskist þegar Urriðafossvirkjun verður reist. Vatnsskorts hefur gætt í hreppnum síðustu tvö sumur vegna þurrka.Fréttablaðið/Anton
Samningar Flóahrepps um að fá vatn frá Árborg eru á lokastigi. Samið hefur verið við Landsvirkjun um að fyrirtækið greiði kostnað við aðveituna, en samkvæmt samningnum fæst ekkert greitt fyrr en virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru komnar á staðfest aðalskipulag. Aðalskipulagi hreppsins hafði verið breytt til samræmis við óskir Landsvirkjunar, en umhverfisráðherra ákvað að staðfesta ekki breytinguna. Ástæðan var sú að Landsvirkjun greiddi útlagðan kostnað Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps við breytingar á aðalskipulaginu. Aðalsteinn Sveinsson, oddviti Flóahrepps, segir mikilvægt fyrir hreppinn að ný vatnsveita komist sem fyrst í notkun. Vatnsskorts hafi gætt undanfarin tvö sumur vegna þurrka. Hann óttast að vegna úrskurðar umhverfisráðherra muni gerð vatnsveitunnar tefjast. Áformað er að hefja framkvæmdir, sem áætlað er að taki fimm til sex mánuði, í vor. Aðalsteinn segir allt benda til þess að tafir verði á vinnunni vegna niðurstöðu ráðherra. Viðbúið er að vatnsból hreppsins raskist þegar Landsvirkjun reisir Urriðafossvirkjun. Þess vegna ákvað Landsvirkjun að semja um að greiða fyrir kostnað við aðveitu, segir Helgi Bjarnason, verkefnisstjóri virkjana í neðri hluta Þjórsár hjá Landsvirkjun. Landsvirkjun áætlar að kostnaður við aðveituna verði á bilinu 120 til 140 milljónir króna, fyrir utan virðisaukaskatt, segir Helgi. Samningurinn taki þó ekki gildi fyrr en breytt aðalskipulag, þar sem gert sé ráð fyrir Urriðafossvirkjun, taki gildi. Flóahreppur undirbýr nú gerð nýs aðalskipulags eftir að ráðherra neitaði að staðfesta fyrra skipulag. Til stendur að auglýsa nýtt skipulag í næsta mánuði. Aðalsteinn segir að sótt verði um styrk vegna kostnaðar við skipulagið úr skipulagssjóði. Koma verði í ljós hversu hár styrkur fáist úr sjóðnum. Í svari Stefáns Thors, skipulagsstjóra ríkisins, við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að sveitarfélag geti fengið greiddan allt að helmingi kostnaðar við gerð eða endurskoðun aðalskipulags úr skipulagssjóði. Flóahreppur fékk framlag úr skipulagssjóði vegna vinnu við aðalskipulag, segir í svari Stefáns. Nú þurfi hreppurinn að kosta meiru ti vegna úrskurðar ráðherra. Fordæmi séu fyrir því að veitt séu framlög úr sjóðnum vegna breyttra forsenda. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Sjá meira