Framkvæma fyrir milljarð án lántöku 8. janúar 2010 05:30 Mjólkárvirkjun. Framleiðslan verður aukin með nýrri vélasamstæðu. Fréttablaðið/Jón Sigurður „
Þetta eru meðvitaðar aðgerðir til þess að reyna að halda uppi atvinnustiginu,“ segir Kristján Haraldsson, orkubústjóri í Orkubúi Vestfjarða, sem hyggur á framkvæmdir fyrir um eitt þúsund milljónir króna. Í nýju framkvæmdunum felst bygging nýrrar 1,15 megavatta virkjunar við Borgarhvilftarvatn sem er ofan Mjólkárvirkjunar í Borgarfirði inn af Arnarfirði. Þá er ætlunin að leysa af hólmi eldri 5,7 megavatta vél í Mjólkárvirkjun með nýrri 7 megavatta vél. Þar er nú einnig 2,4 megavatta vél. Raforkuframleiðslan á svæðinu verður þannig samtals 10,55 megavött í staðinn fyrir 8,1 megavatt. Öfugt við flest önnur orkufyrirtæki hérlendis er fjárhagsstaða Orkubús Vestfjarða afar sterk. Kristján segir að fyrir utan eldri lífeyrisskuldbindingar sé Orkubúið skuldlaust. Það helgist af því að fyrirtækið hafi um áratuga skeið ekki fjármagnað framkvæmdir með lánsfé heldur þeim fjármunum sem reksturinn hafi skilað. Þessari stefnu verði haldið áfram. Að sögn Kristjáns er stefnt að því að bjóða út jarðvinnu og byggingu stöðvarhúss í næsta mánuði. „Þeirri vinnu og uppsetningu vélarinnar á að vera lokið í nóvember,“ segir Guðmundur og ítrekar að farið sé í þessar framkvæmdir nú til að treysta atvinnulífið á Vestfjörðum. „Þó að þetta sé ekki stórt á landsmælikvarða og við vitum náttúrlega ekki hvaðan verktakarnir koma skiptir þetta máli hérna fyrir vestan.“ - gar
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira