Innlent

Tvær umferðir tefldar á Reykjavíkurskákmótinu í dag

Tvær umferðir verða tefldar á Reykjavíkurskákmótinu í dag. Sú fyrri, hófst klukkan níu í morgun, en sú síðari hefst klukkan hálf fjögur en teflt er í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Að loknum þremur umferðum höfðu fjórir keppendur hlotið þrjá vinninga og voru jafnir í efsta sæti. Þetta eru stórmeistararnir, Ivan Sokolov og Vladimir Baklan, Indverska skákkonan Dronavalli Hakira og hinn danski Thorbjörn Bromann

Íslensku stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Henrik Danielsen eru skammt á eftir með tvo sigra og eitt jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×