Avram Grant: Stoltur af því að vera orðinn stjóri West Ham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2010 10:00 Avram Grant þakkar stuðningsmönnum Portsmouth fyrir stuðninginn í lokaleiknum á Wembley. Mynd/AP
Avram Grant var í morgun ráðinn sem stjóri enska úrvalsdeildarliðsins West Ham eins og allir fjölmiðlar í Englandi voru búnir að leiða líkum að í gær. Avram Grant tekur við af Gianfranco Zola sem rétt náði að bjarga liðinu frá falli á síðasta tímabili. David Sullivan, annar eiganda West Ham liðsins tilkynnti formlega um nýja stjórann á blaðamannafundi í morgun. „Ég er mjög ánægður með að geta boðið Avram velkominn til West Ham og er ég er viss um að hann nær góðum árangri," sagði Sullivan. „Við höfum tekið okkur góðan tíma í að ráða mann í brúnna og teljum að við séum komnir með rétta manninn í stöðuna. Það er mikil ástæða til bjartsýni á Upton Park nú þegar Avram er mættur og nýir leikmenn eiga eftir að bætast við hópinn," sagði Sullivan. Gianfranco Zola var rekinn frá liðinu eftir tímabilið en þar endaði West Ham einu sæti frá falli og var í miklum vandræðum allt tímabilið. Grant gerði á sama tíma flotta hluti undir erfiðum kringumstæðum með Hermann Hreiðarsson og félaga í Portsmouth. Liðið fór meðal annars alla leið í bikarúrslitaleikinn en gjaldþrotið átti síðan aðal þáttinn í því að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. „Ég er stoltur af því að vera orðinn stjóri West Ham og mér er mikill heiður sýndur með þessu trausti. Þetta er spennandi verkefni og ég er tilbúinn í að gera mitt besta," sagði Avram Grant. Þetta verður þriðja enska liðið sem hann stýri en hann stjórnaði einnig Chelsea eftir að Jose Mourinho var rekinn tímabilið 2007 til 2008.
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira