Innlent

Ætlaði aldrei að koma aftur heim

Kristján Jóhannsson
Kristján Jóhannsson

Kristján Jóhannsson óperusöngvari ætlaði sér aldrei aftur að koma til Íslands, eftir fjaðrafokið sem varð út af umdeildum styrktartónleikum í Hallgrímskirkju og umtöluðu Kastljósviðtali í framhaldi af því. Þetta er meðal þess sem kemur fram í væntanlegri ævisögu Kristjáns, Il grande tenore, sem Þórunn Sigurðardóttir skráir.

Kristján segist vilja leggja spilin á borðið í bókinni. „Þar sem ég er bæði skapstór og ekki orðvar maður kem ég mér oft í vandræði. Það veldur því kannski líka að þjóðin vilji stundum misskilja mig."- bs








Fleiri fréttir

Sjá meira


×