Innlent

Jón Gnarr setti Menningarnótt

Jón Gnarr setti Menningarnótt.
Jón Gnarr setti Menningarnótt.

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, setti Menningarnótt fyrir stundu í tjaldi við Ferðamálastofu Íslands, Geirsgötu 9. Fjölmenni var viðstatt þegar Jón setti hátíðina formlega.

Leiðtogafundur verður við setninguna þegar Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrar og Borgarstjóri Reykjavíkur hittust, en Akureyri er gestasveitarfélag hátíðarinnar í ár.

Sjö listamenn frá sjö landshlutum mála sjö metra langt málverk af Íslandi en borgarstjórinn dregur fyrstu strokuna. Við setninguna syngur kammerkórinn Cantinovum, Ari Eldjárn hefur alvarleg mál í flimtingum og Valgeir Guðjónsson syngur um nauðsyn þess að mála malbikið grænt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×