Sveinn Andri spyr um ferðir Agnesar á „heilsuhæli“ í boði auðmanna 28. febrúar 2010 14:20
Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, spyr hvort Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, sé til þess bær að fjalla um bankahrunið og útrásina með trúverðugum hætti. Hann vill vita hversu oft hún þáði boð um dvöl á „heilsuhælum" erlendis frá íslenskum viðskiptajöfrum. „Allir þátttakendurnir í hruninu sem og þeir aðilar sem gera upp hrunið með einum eða öðrum hætti eru og verða undir stöðugri smásjá; bæði annarra stofnana og eftirlitsaðila sem og fjölmiðla. En hvað með fjölmiðlana sjálfa? Hvað með blaðamennina sem þjónkuðust við útrásarvíkingana eða þáðu frá þeim dúsur?" segir Sveinn Andri í pistli á Pressunni í dag. Hann segir að dagblöðin séu enn í eigu stórfyrirtækja sem geri þau út til að gæta hagsmuna sinna og ekkert uppgjör virðist hafi farið fram á störfum blaðamanna á tímum útrásarinnar. Hann tekur sem dæmi skrif Agnesar í Sunnudagsmogganum um Sjóvá og Milestone. Því næst spyr Sveinn Andri hvort Agnes sé til þess bær að fjalla um bankahrunið og útrásina með trúverðugum hætti. „Hefur hún gert upp tengsl sín við hina svokölluðu útrásarvíkinga og þær gjafir og fjárstyrki sem hún hlaut frá þeim þegar allt lék í lyndi?" Sveinn Andri segir að Agnes þurfi að upplýsa lesendur Morgunblaðsins um eftirfarandi: „Hversu margar boðsferðir til útlanda þáði Agnes frá íslenskum viðskiptajöfrum? Hversu mörg boð um dvöl á „heilsuhælum" erlendis þáði Agnes frá íslenskum viðskiptajöfrum? Hverjir voru það sem greiddu kostnaðinn í hvert og eitt skipti? Hver var kostnaður við hverja og eina ferð og dvalarkostnaður?" Jafnframt segir Sveinn Andri að áður en Agnes heldur áfram að dæma gerendur í bankahruninu verði hún að gera lesendum Morgunblaðsins grein fyrir þessu og draga ekkert undan. „Ella geta þeir ekki treyst því að hún fjalli um hrunið með hlutlausum og málefnalegum hætti." Pistilinn er hægt að lesa hér.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent