Innlent

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Komið hefur upp grunur um salmonella smit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna.

Fram kemur í tilkynningu að um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu (Rlnr.) 011-10-03-3-22.

Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins og í samráði við heilbrigðisyfirvöld hefur verið unnið að innköllun vörunar í dag.

Hafi fólk ferska kjúklinga heima hjá sér er það beðið um að gæta að rekjanleikanúmerinu, sem er að finna á umbúðunum, og skila kjúklingnum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls, Völuteigi 2 í Mosfellsbæ. Nánari upplýsingar fást á skrifstofutíma í síma 566-8877 eða á sala@matfugl.is.

„Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir leiðbeiningum um eldun kjúklinga, steiki í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra vöru. Kjúklingur með öðru rekjanleikanúmeri en þessu er fullkomlega í lagi,“ segir í tilkynningu frá Matfugli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×