Erlent

Bankaræningjar misreiknuðu sig

Bankaræningjar í Þýskalandi misreiknuðu sig illilega þegar þeir ætluðu að sprengja upp peningahólf í banka einum á landsbyggðinni. Þeir virðast hafa notað allt of mikið sprengiefni því bankinn hreinlega sprakk í loft upp. Enginn slasaðist þó í sprengingunni en brak úr bankanum skemmdi þó nærliggjandi byggingar og bíla. Fimmtíu og fimm slökkviliðsmenn voru í því að slökkva elda í byggingum og bílum á svæðinu. Ræningjarnir hurfu að sögn lögreglu á braut tómhentir og er þeirra nú leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×