Engar loðnuveiðar að svo stöddu 12. janúar 2010 16:29 Jón Kr. Friðgeirsson.
Í nótt lauk mælingu rannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar á loðnustofninum, en bæði skipin hafa verið við loðnumælingar frá 5. janúar. Í tilkynningu frá Hafró segir að stofnunin leggi til að veiðar verði ekki hafnar að svo stöddu. „Aðstæður til mælinga hafa verið góðar frá því að skipin fóru frá Reykjavík, að undanskildu því að hafís hamlaði leit á töluvert stóru svæði vestur og norður af Vestfjörðum, sem kann að hafa haft áhrif á niðurstöður," segir í tilkynningunni. „Útreikningar sýna að alls mældust 360 þúsund tonn af loðnu, þar af mældist hrygningarstofninn um 355 þúsund tonn. Út af Austfjörðum mældust 180 þús. tonn, allt hrygningarloðna. Út af Norðausturlandi mældust tæp 120 þús. tonn, mest hrygningarloðna. Út af vestanverðu Norðurlandi mældust 61 þúsund tonn, þar af 56 þúsund tonn af hrygningarloðnu." Aflaregla við loðnuveiðar byggir á að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar segir ennfremur en mælingar á stærð hrygningarstofnsins eru undir því magni og því leggur Hafrannsóknastofnunin til að loðnuveiðar verði ekki hafnar að svo stöddu. „Rannsóknaskipið Árni Friðriksson verður áfram við athuganir og mælingar á loðnustofninum ásamt leitarskipi sem væntanlegt er á miðin út af Norðurlandi á morgun, miðvikudag."
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira