Innlent

Niðurstaðan vantraustsyfirlýsing - en vill ekki að ríkisstjórn segi af sér

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ekkert annað en vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina sem neiti að horfast í augu við staðreyndir. Hann segir ráðherra ekki hafa viljað axla ábyrgð á sínum gjörðum, „hún er rúinn trausti," bætti hann svo við.

Þetta sagði hann í Silfri Egils þar sem rætt er við formenn flokkanna. Aðspurður hvort Bjarni ætlist til þess að ríkisstjórnin segi af sér svaraði hann: „Ég er ekki að segja að ríkisstjórnin eigi að segja af sér."

Bjarni benti svo á að stöðugleikasáttmálinn væri í uppnámi.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði helstu ástæður fyrir því vera einfaldlega Icesave-málið þar sem ekkert erlent fjármagn fengist inn í landið fyrr en sá samningur væri í höfn. Þá sagði hún einnig að Bjarni væri að tala fyrir stjórnarkreppu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×