ESB gæti verið skaðabótaskylt í Icesave málinu 11. janúar 2010 12:11
Evrópusambandið gæti verið skaðabótaskylt vegna gallaðrar tilskipunar um innistæðutryggingar að mati Stefáns Más Stefánsson, lagaprófessors. Hann segir að tilskipunin gæti hafa skapað réttmætar væntingar fyrir innistæðueigendur í Bretlandi um að innistæður þeirra væru tryggðar upp að 20 þúsund evrum, en svo sé ekki raunin. Stefán Már Stefánsson lagaprófessor og Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður hafa kynnt sér ítarlega EES tilskipunina um innistæðutryggingar frá árinu 1994 og almennt lagalega óvissu í Icesave málinu. Helstu niðurstöður þeirra eru að Íslandi beri að sjálfsögðu að standa við allar alþjóðlegar skuldbindingar sínar. Hins vegar komast þeir að þeirri niðurstöðu að ekkert í tilskipuninni réttlæti það að gera íslenska ríkið ábyrgt fyrir bankahruni eins og átti sér stað hér á landi. „Við vitum vel ef að stjórnvöld hafa sýnt af sér vanrækslu við innleiðingu slíkrar tilskipunar þá getur komið til bótaskylda en við höfum svo sem ekki séð neinn slíkan bótagrundvöll á borðinu," segir Stefán Már. Í öðru lagi hafa þeir gert greiningu á því hvort að í yfirlýsingu stjórnvalda um ábyrgð ríkisins á greiðslu til innistæðueigenda hafi falist ólögmæt mismunun í skilningi EES samningsins. „Þar getur t.d. komið til greina yfirlýsing stjórnvalda í því sambandi og líka yfirlýsing stjórnvalda um að ábyrgjast greiðslur. Við höfum greint þetta og komist að þeirri megin niðurstöðu að þarna er ekki um neina mismun í skilningi EES-samningsins." Stefán Már segir að Evrópusambandið sjálft sé hugsanlega bótaskylt vegna gallaðrar tilskipunar um innistæðutryggingakerfið. Innlánseigendur í Bretlandi máttu vænta þess að innistæður þeirra væru í raun tryggðar upp að 20 þúsund evrum. „Svo er hins vegar ekki raunin og þetta er alls ekki augljóst fyrir almenning. Við höldum því einfaldlega fram að tilskipunin eins og hún er orðuð og framsett hafi getað skapað réttmætar væntingar fyrir innistæðieigendur og valdið skaðabótaábyrgð fyrir Evrópusambandið," segir Stefán Már.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Fleiri fréttir Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Sjá meira