Hvalurinn í Vejle-firði var 140 ára gamall 29. október 2010 08:54 Hvalurinn í Vejle-firði slapp við skutulinn í eina og hálfa öld og endaði ævina saddur lífdaga á danskri strönd.
Langreyður ein stór og mikil sem synti á land í Vejle firði í Danmörku í sumar hefur nú verið aldursgreind og í ljós kom að dýrið var á bilinu 135 til 140 ára gamalt. Vísindamenn frá danska náttúrufræðisafninu komust að þessu en í nýútkominni hvalabók eftir þá Jón Baldur Hlíðberg og Sigurð Ægisson segir að elsta dýr af þessari tegund sem vitað sé um hafi náð 114 ára aldri. Langreyður er næststærst allra hvala og aðeins steypireyðurin tekur henni fram í stærð. Karldýrin eru venjulega um 18,5 metrar að lengd og kvendýrin um 19,5 metrar. Þrátt fyrir háan aldur hefur hvalurinn gamli verið undir meðallagi því hann mældist um 15 metrar að lengd. Abdi Hedayat, danskur hvalasérfræðingur, segir í viðtali við danska ríkisútvarpið að hvalurinn í Vejle firði hafi reynst mun eldri en í fyrstu hafi verið talið. Aldur hans þýðir að hann hefur verið svamlandi um heimshöfin á sama tíma og Charles Darwin gerði sýnar merkustu uppgötvanir og sigldi um suðurhöfin í rannsóknarferðum sínum. Íslendingar hafa nýlega hafið veiðar á langreyð að nýju eftir nokkurt hlé og hafa ríflega hundrað dýr verið skotin á þessu ári. Ekki er ljóst hvort hafið umhverfis Ísland hafi verið reglulegur viðkomustaður hvalsins gamla í gegnum áratugina en ef svo er hefur hann greinilega vikið sér fimlega undan skutlum íslenskra hvalveiðimanna og kollega þeirra í suðurhöfum.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira