Brown vill búa áfram í Downing stræti Óli Tynes skrifar 7. maí 2010 12:28 Gordon kemur heim. Mynd/AP
Það fór eins og við var búist, enginn flokkur fékk hreinan meirihluta á breska þinginu. Bloggari á vefsíðu The Times orðaði þetta þannig: -Þjóðin hefur talað en það er ekki ljóst hvað hún sagði. Lokatölur liggja ekki fyrir ennþá en það eru svo fá sæti eftir að skýrast að það er ljóst að Íhaldsflokkurinn nær ekki þeim 326 sætum sem hann þarf til að fá hreinan meirihluta. Samkvæmt þeim tölum sem nú liggja fyrir er sigur hans þó ljós þar sem hann hefur bætt við sig að minnsta kosti 92 þingsætum og Verkamannaflokkurinn hefur tapað 87. Stóri taparinn er þó kannski frjálslyndir demokratar. Skoðanakannanir bentu til þess að þeir myndu bæta vel við sig en þess í stað töpuðu þeir fimm þingsætum. Samkvæmt þessu þætti kannski eðlilegt að Íhaldsflokkurinn fengi fyrstu tilraun til stjórnarmyndunar. Bresk lög eru hinsvegar með þeim hætti að forsætisráðherra sitjandi ríkisstjórnar á alltaf fyrsta rétt. Og Gordon Brown hefur ýjað að því að hann vilji tala við Frjálslynda demokrata um stjórnarmyndum. Nick Clegg er hinsvegar beygður eftir ósigurinn og hefur sagt að honum finnist að James Cameron eigi rétt á að reyna fyrstur. Líklega líst honum líka betur á að ganga í sæng með Cameron en Brown. Íhaldsmenn hafa náttúrlega brugðist ókvæða við þessu brölti Browns og segja að hann hafi fengið slíka útreið að hann eigi að hunskast sem fyrst út úr Downingstræti 10. Ekki er mikil hefð fyrir samsteypustjórnum í Bretlandi og nokkrir fréttaskýrendur telja að hver sem útkoman verði næstu daga verði boðað til nýrra kosninga eftir ár eða svo.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira