Enski boltinn

Owen hæstánægður hjá Man Utd

Elvar Geir Magnússon skrifar
Owen fagnar marki sínu gegn Aston Villa í úrslitaleik deildabikarsins.
Owen fagnar marki sínu gegn Aston Villa í úrslitaleik deildabikarsins.

Michael Owen segist alls ekki sjá eftir þeirri ákvörðun sinni að fara til Manchester United. Hann lítur ekki á hana sem misheppnaða.

„Ég elska að vera í Manchester United," segir Owen sem hefur ekki fengið mikið að spila í vetur. Hann var þó í byrjunarliðinu í úrslitaleik deildabikarsins þar sem hann skoraði fyrra mark United.

„Það er fullt af fólki sem vill horfa neikvætt á hlutina. Ég á fjögur börn og spila fyrir eitt besta félagslið Evrópu. Það er ekki svo slæmt er það nokkuð?"

„Við erum í baráttu um að vinna ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina. Keppnir sem ég hef aldrei unnið svo ég hef alla ástæðu til að vera brosandi," segir Owen sem er sáttur við sína frammistöðu með Man Utd.

„Wayne Rooney hefur verið að spila ótrúlega á þessari leiktíð. Á öðrum tímabilum hefði ég fengið að spila meira, hann hefði meiðst eða farið í leikbann. Ég býst við að fá fleiri leiki þegar ég hef jafnað mig af meiðslunum sem ég hlaut gegn Aston Villa."

„Tilhugsunin um bikara drífur mig áfram. Ég hef unnið færri bikara en margir samherjar mínir. Þeir hafa enn hungrið og ég hef það svo sannarlega. Gary Neville, Ryan Giggs og Paul Scholes eru í þessari stöðu því þeir hafa haft hungur í að gera vel."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×