Enski boltinn

Chelsea ekki búið að bjóða í Ramos

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Chelsea neitar því staðfastlega að hafa boðið Real Madrid 33 milljónir punda fyrir bakvörðinn Sergio Ramos.

Spænski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við Chelsea í nokkurn tíma enda talinn vera í miklu uppáhaldi hjá stjóra liðsins, Carlo Ancelotti.

"Þessar sögur eru hreinar lygar. Við höfum ekki lagt inn neitt tilboð í Ramos. Það sem kom okkur samt á óvart var að maður á vegum Ramos skyldi hringja í okkur og spyrja hvort við hefðum áhuga á honum," sagði Frank Arnesen, íþróttastjóri Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×