Innlent

Spá MMR rættist

Besta flokknum var spáð 6 mönnum í borgarstjórn samkvæmt könnun á vegum MMR. Það rættist.
Besta flokknum var spáð 6 mönnum í borgarstjórn samkvæmt könnun á vegum MMR. Það rættist. Mynd/Daníel Rúnarsson

Niðurstöður könnunar MMR á fylgi stjórnmálaflokkanna fyrir nýliðnar borgarstjórnarkosningar í Reykjavík vöktu mikla athygli enda mældist Besti flokkurinn með nærri 36 % fylgi og um leið stærsti flokkurinn. Niðurstöður kosninganna endurspegluðu nær fullkomnlega og reyndist skipting borgarfulltrúa milli framboðanna að loknum kosningum nákvæmlega hin sama og spáð hafði verið samkvæmt könnun sem MMR framkvæmdi.

Helstu frávik í samanburði könnunarinnar og kosningaúrslitanna voru þau að Sjálfstæðisflokkurinn fékk 2,8% meira fylgi en spáð var og Vinstri grænir fengu 3,1 % minna fylgi en spáð var.

Heimasíða MMR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×