Innlent

Eldri borgari með kókaín var burðadýr

Tæplega sjötugur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið tekin með tæpt kíló af kókaíni. Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð í síðustu viku við komuna frá Kaupmannahöfn.

Efnin fundust við reglubundna leit í ferðatöskum mannsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu leikur grunur á að maðurinn sé burðardýr, en hann hefur aldrei komið við sögu lögreglu áður








Fleiri fréttir

Sjá meira


×