Innlent

Skemmdi fyrir hundruð þúsunda til að ná í tvær rauðvínsflöskur

Brotist var inn í Vínbúð í nótt. Mynd/ Anton.
Brotist var inn í Vínbúð í nótt. Mynd/ Anton.
Brotist var inn í verslun ÁTVR í Skeifunni i Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur rauðvínsflöskum.

Andvirði þýfisins er aðeins sjö þúsund krónur en tjónið af innbrotinu hleypur á hundruðum þúsunda króna, því þjófurinn braut tvær stórar rúður til þess að komast inn. Sú fyrri brotnaði ekki nægilega mikið svo hann kæmist þar inn, og braut hann þá aðra. Hann komst undan.

Þá gripu öryggisverðir mann, sem hafði stolið sér langloku og hamborgara í verslun 10-11 í Austurstræti í nótt, og lögreglumenn gripu lögreglumenn þrjá menn á jeppa, eftir að þeir höfðu stolið timbri í Kópavogi og komið því undan. Þeir eru vistaðir í fangageymslum og verða yfirheyrðir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×