Góður pabbi Óli Tynes skrifar 3. febrúar 2010 14:16
Moammar Gaddafi leiðtogi Libyu hefur lagt fæð á Sviss eftir að sonur hans Hannibal og eiginkona hans voru handtekin þar í landi í júlí árið 2008. Frúin var að fara á svissneskt sjúkrahús til að eignast barn. Hjónin voru handtekin fyrir að ganga í skrokk á tveim þjónum sínum og sátu í gæsluvarðhaldi í tvo daga. Þegar þau voru látin laus gegn tryggingu stungu þau af úr landi. Þjónarnir féllu síðar frá ákæru sinni. Hannibal hefur iðulega ratað í fréttir fyrir fyllerí og ofbeldi, en Gaddafi stendur með syni sínum. Hann hefur því gripið til ýmissa hefndaraðgerða gegn Sviss. Tveir svissneskir kaupsýslumenn voru handteknir í Libyu fyrir að vera í landinu lengur en vegabréfsáritun þeirra leyfði. Þeir voru einnig sakaðir um að hafa stundað viðskipti í leyfisleysi. Mennirnir hafa haldið til í svissneska sendiráðinu í Tripoli svo mánuðum skiptir. Þeir þora ekki út fyrir dyr af ótta við að vera handteknir. Nokkur svissnesk fyrirtæki hafa þurft að loka skrifstofum sínum í Libyu og flugferðum milli landanna hefur verið fækkað. Libya hefur tekið meginhluta peninga sinna í Sviss út úr þarlendum bönkum. Það voru um 50 milljarðar dollara. Á fundi G-8 ríkjanna á Ítalíu síðastliðið sumar lagði Gaddafi svo til að Sviss yrði leyst upp og skipt á milli Ítalíu, Frakklands og Þýskalands. Sviss væri jú alheimsmafía en ekki þjóðríki.
Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira