Innlent

Hótaði laganna vörðum ítrekað

Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir að hóta fjórum lögreglumönnum lífláti. Atvikið átti sér stað í ágúst 2008. Maðurinn var færður í lögreglubíl við veitingastaðinn Glaumbar við Tryggvagötu í Reykjavík.

Á leiðinni að lögreglustöðinni við Hverfisgötu, svo og í fangamóttöku stöðvarinnar, hótaði maðurinn ítrekað lögreglumönnunum fjórum, sem voru við skyldustörf, lífláti. - jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×