Innlent

Síðustu skiladagar á jólapóstinum

Kort og pakka innanlands þarf að senda í síðasta lagi 20. desember
Kort og pakka innanlands þarf að senda í síðasta lagi 20. desember
Pósturinn minnir á síðustu öruggu skiladaga fyrir sendingar jólakorta og jólapakka í desember. Það styttist í jólin og nú fer hver að verða síðastur að póstleggja jólakortin til landa innan Evrópu en síðasti skiladagur er föstudagurinn 17.desember til að þau skili sér í tæka tíð fyrir jólin.

TNT sendingar til landa utan Evrópu hafa frest til 17.desember en þær TNT sendingar sem fara til Evrópu til 21.desember.

Til að vera viss um að jólapakkar og jólakort innanlands skili sér fyrir jól er mánudagurinn 20.desember síðasti öruggi skiladagur.

Þessar dagsetningar eru mikilvægar til að sendingarnar komist til viðtakenda í tæka tíð fyrir jólin.

Pósturinn tekur að sjálfsögðu á móti jólapósti eftir 20.desember en öruggast er að senda pakkana og kortin fyrir ofangreindar dagsetningar.

Á öllum pósthúsum landsins er tekið á móti jólapóstinum en til að auka þjónustu fyrir jólin eru opin jólapósthús í Kringlunni, Smáralind og á Glerártorgi á Akureyri. Opnunartími jólapósthúsanna fylgir afgreiðslutíma verslunarmiðstöðvanna.

Allar nánari upplýsingar um síðustu skiladaga, staðsetningu pósthúsa, opnunartíma og þjónustu Póstsins er að finna á www.postur.is

Síðustu öruggu skiladagar fyrir jólakort og jólapakka í desember:



  • 17.desember - kort til Evrópu
  • 17.desember - TNT sendingar utan Evrópu
  • 20.desember - kort og pakkar innanlands
  • 21.desember - TNT sendingar til Evrópu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×