Fær fingurkossa fyrir ljós á göngugrindinni 26. febrúar 2010 05:30 Helgi Pálmarsson sést um langan veg í umferðinni og er miklu öruggari eftir að hann lét festa rautt öryggisljós sem blikkar á göngugrindinni hans.Fréttablaðið/Anton „
Ég veit ekki hvað ég hef fengið mörg vink og marga fingurkossa frá kvenfólkinu sem keyrir bílana eftir að ég setti ljósin á göngugrindina," segir Helgi Pálmarsson, 76 ára göngugarpur í Reykjavík. Helgi segist hafa viljað auka öryggi sitt þegar hann fari út að ganga. Hann hafi keypt sér ljósabúnað í Markinu og starfsmenn verslunarinnar fest búnaðinn á fyrir hann. Eitt ljós vísi aftur og annað fram. Ljósin gangi fyrir rafhlöðum og eigi að endast í allt að eitt þúsund klukkustundir. „Ég læt ljósið alltaf vera hægra megin við mig og geng beint á móti umferðinni. Þetta sést langan veg," útskýrir Helgi sem kveður ljósin þegar hafa sannað notagildi sitt. „Þau eru búin að bjarga mér sex sinnum frá því að lenda fyrir bílum sem annaðhvort hafa sveigt framhjá mér eða stoppað þegar ég hef verið að ganga yfir götu." Margir hafa að sögn Helga veitt öryggisbúnaðinum eftirtekt. „Það stoppaði strætisvagn hjá mér í morgun og bílstjórinn spurði hvort það væri eitthvað að hjá mér. Ég sagði honum þá að ég væri með þetta til að bílstjórar sæju að þarna væri maður með göngugrind. Hann var svo hrifinn að hann kom út úr vagninum og þakkaði mér fyrir að setja ljósin á göngugrindina af því að þau sjást langan veg," segir Helgi. Lögreglan hefur líka haft afskipti af Helga. „Það stoppaði mig lögregluþjónn á Kringlumýrarbrautinni. Hann sagðist endilega þurfa að fá upplýsingar hjá mér og ég útskýrði ljósin. Hann var mjög ánægður, sagði að þetta þyrfti að koma á allar göngugrindur," segir hugvitsmaðurinn. Jafnframt kveðst Helgi hafa fengið hrós frá fjórum leigubílstjórum sem hafi komið út úr bílum sínum til að skoða göngugrindina. „Þeir tóku í höndina á mér og þökkuðu mér fyrir því þarna væri komið eitt almesta viðvörunarkerfi í umferðinni," segir Helgi og undirstrikar að kerfið geti líka virkað á göngustöfum. „Það væri mikill plús fyrir þá sem sjá illa, til dæmis gamalt fólk, að sjást langt að og vara þannig aðra í umferðinni við." Reyndar er þetta ekki í fyrsta sinn sem sagt er frá Helga í fjölmiðlum í sambandi við umferðaröryggi. Fyrir nokkru fékk hann aðsvif undir stýri á bíl sínum og skilaði þá sjálfviljugur inn ökuskírteini sínu. „Ég sá að ég gæti kannski keyrt á unglinga sem væru að leika sér á götunni og þeir jafnvel lent örkumla ævilangt í hjólastól. Ég gæti ekki lifað við það." gar@frettabladid.is
Mest lesið Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Erlent Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Innlent Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Innlent Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Innlent Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Innlent Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Innlent Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Innlent Hélt ræðu gráti nær Innlent Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Erlent Borgin leggur bílstjórum línurnar Innlent Fleiri fréttir Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Hélt ræðu gráti nær Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfaranda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Gular viðvaranir vegna úrkomu og aukin skriðuhætta Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum Sjá meira